Karlakórinn Fóstbræður

me

Fóstbræðrasalurinn

Verð og tími

Leiguverð er 150.000 kr og leigist salurinn frá klukkan 9:00* til 01:00. Viðburði þarf að ljúka fyrir klukkan 01:00 en þá getur frágangur hafist. Aðgengi að sal degi fyrr fer eftir bókunarstöðu hverju sinni.

*í sumum tilfellum leigist salurinn frá kl. 14:00

Skoða lausar dagsetningar

--

Innifalið í leigu

Borðbúnaður fyrir allt að 140 gesti.

Skjávarpi og tjald, hljóðkerfi, míkrafónar, svið og flygill.

Þrif eru innifalin í leiguverði en leigutaki sér um allan frágang.

Hægt er að panta dúka og er leiguverð 1.050 kr stk. Hver dúkur dekkar eitt 6 manna borð.

Aðstaða og veitingar

Leigutaki sér alfarið um veitingar. Eldhúsaðstaða er til staðar fyrir upphitun, undirbúning á framreiðslu og uppvaski ásamt kaffivél, kælum og frysti.

Á barnum má finna kæla og klakavél.

Leigutaka er heimilt að taka með eigin starfsfólk. Leigusali getur haft milligöngu um aðstoð í sal, eldhús eða á bar eftir samkomulagi.

Bílastæði eru við húsið og er lyfta í húsinu.

Skoðið bókunardagatalið hér að neðan til að sjá lausar dagsetningar. 


Í hjarta Laugardalsins stendur Fóstbræðrasalurinn – sögufrægur og hlýlegur salur sem hefur í áratugi verið miðpunktur menningar, samveru og sköpunar. Hér er glæsileg aðstaða sem hentar fyrir fjölbreytta viðburði: tónleika, ráðstefnur, ættarmót, námskeið og veislur.

Salurinn hefur góðan hljómburð sem lyftir tónlistarflutningi, auk skjá- og hljóðkerfis sem hentar vel fyrir fundi og fyrirlestra.

Hér er sveigjanleg aðstaða og gott aðgengi fyrir alla – umgjörð þar sem hugmyndir blómstra og gestir njóta. Salurinn leigist án veitinga en með öllum borðbúnaði. Hægt er að leigja með eða án aðstoðarfólks, sem gefur leigutaka frelsi til að aðlaga viðburðinn að eigin þörfum.

Hvort sem þú ert að skipuleggja stóran viðburð eða notalega samveru, þá er Fóstbræðrasalurinn rétti staðurinn.

Hafðu samband og tryggðu þér dagsetningu – viðburðurinn þinn á skilið einstakt rými!

Kjarnaspurningnar og svör

Hvað kostar að leigja salinn og hvað er innifalið ?

  • Leiguverð er 150.000 kr - innifalið í verði eru þrif og allur tækni- og borðbúnaður.
  • Staðfestingargjald er 50.000 kr og endanlegt uppgjör í vikunni eftir viðburð.

Má koma með eigin veitingar og starfsfólk?

  • Leigutaka er velkomið að koma með eigin veitingar og starfsfólk. Við getum haft milligöngu fyrir aðstoð í sal, eldhúsi og/eða bar ef þess er óskað.

Umhverfi

  • Salurinn er á 2. hæð og tekur 140 manns í sæti en 170 standandi
  • Næg ókeypis bílastæði
  • Bar og setustofa
  • Lyfta
  • Flygill

Veitingar

  • Leigutaki sér um veitingar og drykki

Búnaður

  • Diskar, glös og hnífapör
  • Borð og stólar (hægt að "yfirdekkja" stólana)
  • Dúkar (hægt að hafa milligöngu um dúka)

Aðstaða

  • Eldhús
  • Kaffivél
  • Gufuofn með .. bökkum
  • Uppþvottavél
  • Kælar og frystir

Tæknibúnaður

  • Myndvarpi og tjald
  • Hljóðkerfi og hljóðnemar
  • Þráðlaust net
  • Svið

Hafa samband