|
Karlakórinn Fóstbræður hefur sungið inn á fjölda hljómplatna og geisladiska gegnum tíðina. Sumt er löngu uppselt annað er falt í verslunum.
Diskurinn Fóstbræðralag var gefinn út haustið 2006 í tilefni af 90 ára afmæli kórsins. Hann inniheldur fjölmargar upptökur af söng kórsins á tveimur diskum og spanna þær allan starfsferil kórsins.
Tónleikar Fóstbræðra með þjóðarhljómsveitinni Stuðmönnum haustið 1998 tókust með eindæmum vel og komust færri að en vildu. Tónleikarnir báru yfirskriftina Íslenskir karlmenn og eru varðveittir á samnefndum geisladiski sem seldist í tugþúsundum eintaka þegar hann kom út.
Hljómdiskurinn Ár vas alda kom út árið 1996. Hann inniheldur allmörg íslensk lög sem hafa verið á söngskrá kórsins fyrr og nú.Tilefni útgáfunnar var 80 ára afmæli kórsins og ber lagavalið vitni um það.
Kvikmynd Guðnýjar Halldórsdóttur, Karlakórinn Hekla naut mikilla vinsælda í upphafi tíunda áratugarins en hún fjallar um erfiða utanferð íslensks karlakórs í leit að frægð og frama. Fóstbræður léku ekki í myndinni en önnuðust allan söng sem heyra mátti og er hann varðveittur á geisladiski sem ber nafn myndarinnar.
Geisladiskurinn Stiklað á stóru varðveitir upptökur með karlakórnum Fóstbræðrum og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Það er meðal annars að finna hina geysivinsælu Fóstbræðrasyrpu sem Jón Þórarinsson gerði úr lögum Árna Þorsteinssonar fyrir kórinn.
Sálmadiskur með söng Fóstbræðra undir stjórn Ragnars Björnssonar inniheldur bæði hefðbundna almenna sálma og þá sem tengjast ýmsum hátíðum kirkjuársins.
Fjórtán Fóstbræður nutu fáheyrðra vinsælda á sjöunda áratugnum og einstakur hljómur sveitarinnar er varðveittur í nokkrum upptökum. Útsetningar Magnúsar Ingimarssonar eru sígildar og hlutur hans og Svavars Gests í þessu sérstaka ævintýri er mikill.
|