|
| 2009 - 2010 |
|
Vetrarstarfið 2009 - 2010 hófst 16. september. Á dagskrá eru tónleikar á Akranesi fimmtudaginn 5. nóvember kl. í Tónbergi. Þar verður flutt hefðbundin karlakóratónlist þ.m.t. nokkur þekkt og vinsæl lög í útsetningu Árna Harðarsonar, söngstjóra.
Kórinn mun gefa út sálmadisk fyrir jól og lýkur upptökum 2. nóvember.
Þá munu Fóstbræður taka þátt í Frostrósum eins og undanfarin ár og syngja á aðventunni í Seljakirkju og á samkomu í Friðrikskapellu auk þess að syngja sérstaka jólatónleika í Guðríðarkirkju laugardaginn 19. desember. Eftir áramót verður hafinn undirbúningur að vortónleikum og söngferð út á land.
Kórinn tekur auk þess þátt í nokkrum tónleikum og viðburðum á starfsárinu. Verk eftir Randall Thompson frumflutt á Íslandi Ameríska tónskáldið Randall Thompson fæddist 1899 og lést 1984. Hann lærði tónlist við virta háskóla í Bandaríkjunum á borð við Harvard, Wellesey College og háskólann í Rochester og kenndi jafnframt við þessar stofnanir og voru nokkrir þekktustu tónlistarmenn og tónskáld Bandaríkjanna meðal nemanda hans. Sennilega er Leonard Bernstein frægastur þeirra. Thompson var talsvert afkastamikið tónskáld og meðal verka hans eru mörg sem sérstaklega eru skrifuð fyrir kóra, ekki síst karlakóra. Sérstaklega mætti nefna verk eins og Alleuia sem er fastur liður á efnisskrá fjölmargra amerískra kóra. Thompson samdi einnig óperur og sinfóníur en kórverkin munu aðallega halda nafni hans á lofti. Verkið sem Fóstbræður syngja eftir Thompson hefur ekki heyrst áður í flutningi íslenskra kóra en það heitir Tarantella og er samið fyrir karlakór og píanó eða hljómsveit undir áhrifum af suður ítölskum þjóðdansi sem ber sama heiti. Textinn er eftir breska rithöfundinn Hilaire Belloc.
Tvær kynslóðir stjórna þjálfa Fóstbræður Stjórnandi karlakórsins Fóstbræðra er sem fyrr Árni Harðarson sem hefur haldið á tónsprotanum frá 1991. Í gegnum árin hafa ýmsir tónlistarmenn lagt söngstjóra lið við raddþjálfun og yfirferð á æfingum. Undanfarið misseri hefur Viktor Árnason Harðarsonar lagt Fóstbræðrum lið með þessum hætti en hann er ungur og upprennandi tónlistarmaður úr Kópavogi. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem feðgar leggja saman krafta sína við þjálfun karlakórsins Fóstbræðra í tæplega 100 ára sögu hans.
Fóstbræður gefa út disk með sálmasöng, Til þín Drottinn Um þessar mundir er verið að leggja síðustu hönd á vinnslu geisladisks sem inniheldur flutning Fóstbræðra á sálmum af ýmsu tagi. Þetta eru í langflestum tilvikum sálmar og lög sem hafa unnið sér sess við kirkjulegar athafnir af margvíslegu tagi í gegnum nokkrar kynslóðir. Sem dæmi um þekkta sálma sem Fóstbræður flytja á diski þessum mætti nefna Hærra minn Guð til þín, Lýs milda ljós, Ég kveiki á kertum mínum og Hvað bindur vorn hug. Árni Harðarson, stjórnandi kórsins, samdi einn sálmanna á disknum, Stafar frá stjörnu, við kvæði Matthíasar Jochumssonar fyrir Ríkisútvarpið. Meðal nýrri verka ber að nefna Til þín Drottinn eftir Þorkel Sigurbjörnsson við ljóð Páls V. Kolka en diskurinn mun bera nafn þess og heita, Til þín Drottinn. Í því heiti felst nefnilega ekki aðeins heiti þessa tiltekna gullfallega sálms heldur og vísun til þess að allir sálmar eru í raun samdir og sungnir til Drottins. Upptökur fóru fram í Langholtskirkju undir stjórn Sigurðar Rúnars Jónssonar og með tilstyrk Jóns Stefánssonar, organista kirkjunnar, sem leikur með kórnum á orgel ímörgum sálmanna. Kirkjutónlist er stór þáttur í verkefnaskrá karlakóra og Fóstbræður hafa alla sína starfstíð sungið við kirkjulegar athafnir af margvíslegu tagi. Kórinn á rætur sínar í kristilegu starfi KFUM og með þessum diski má því segja að kórinn sé að minnast uppruna síns og leggja fram skerf til flutnings tónlistar við kirkjulegar athafnir. Vonir standa til þess að á vortónleikum verði diskurinn tilbúinn til sölu bæði á vegum kórsins og í helstu hljómplötuverslunum. |
| < Fyrra | Næsta > |
|---|