|
Hvert starfsár karlakórsins Fóstbræðra er í senn nýtt og gamalt. Nokkrir liðir hvers starfsárs eru fastir og ganga eftir þrautreyndu skipulagi til margra áratuga. Önnur verkefni eru ný og fersk og krefjast þess að kórinn takist á við tónlistina með opnum huga og sveigjanleika.
Dæmigert starfsár Fóstbræðra hefst snemma að hausti. Varla líður sú vika að kórinn komi ekki fram við eitthvert tækifæri hvort sem það er brúðkaup, afmæli, jarðarför, opnanir, vígsluhátíðir eða einhver önnur opinber tækifæri. Samhliða slíkum verkefnum tekur kórinn þátt í tónleikahaldi með öðrum eða sinnir æfingum fyrir upptökur eða tónleika.
Aðventukvöld og þátttaka í tónlistarviðburðum sem tengjast jólum eru árviss hluti af verkefnum kórsins.
Seinni hluta vetrar einbeitir kórinn sér að æfingum fyrir venjubundna vortónleika sem er jafnan lokið í apríl og eftir það gæti undirbúningur fyrir utanför eða æfingar fyrir þátttöku í listahátíð eða tónlistarhátíðum verið á dagskrá.
Vortónleikar Fóstbræðra 2010
Hinir árlegu tónleikar karlakórsins Fóstbræðra verða að þessu sinni allir haldnir í Langholtskirkju eftirtalda daga:
þriðjudag 13. apríl kl. 20
miðvikudag 14. apríl kl. 20
fimmtudag 15. apríl kl. 20
laugardag 17. apríl kl. 16
Efnisskrá vortónleikanna er fjölbreytt að vanda. Segja má að hún sé sótt í hinn hefðbundna og þrautreynda grunn karlakóratónlistar sem flestir velunnarar Fóstbræðra munu kannast vel við en einnig hljómar ný tónlist úr smiðju íslenskra tónskálda.
|