Karlakórinn Fóstbræður
Forsíða | Um Fóstbræður | Fréttir | Tónleikahald / Verkefni | Útgáfa | Fóstbræðraheimilið | Tenglar | Hafa samband | Veftré | Ensk síða
efst.jpg
Söngstjóri Fóstbræðra

Árni Harðarson
Árni Harðarsonlauk burtfararprófi í píanóleik frá Tónlistarskóla Kópavogs árið 1976. Hann stundaði framhaldsnám í píanóleik og tónsmíðum við The Royal College of Music London á árunum 1978 - 1983. Eftir að hann sneri heim hefur Árni verið virkur í íslensku tónlistarlífi sem kórstjóri, tónskáld og tónlistarkennari. Hann var stjórnandi Háskólakórsins árin 1983 - 1989 og var ráðinn söngstjóri Fóstbræðra haustið 1991. Auk þess að sinna tónsmíðum hefur Árni unnið að félagsmálum tónskálda og var m.a. formaður Tónskáldafélags Íslands 1995-1998. Hann hefur einnig verið fulltrúi Íslands í NOMUS, Norrænu tónlistarnefndinni, frá 1993.
Árni er skólastjóri Tónlistarskóla Kópavogs.

 

 

 

 
 
Innskráning