Karlakórinn Fóstbræður
Forsíða | Um Fóstbræður | Fréttir | Tónleikahald / Verkefni | Útgáfa | Fóstbræðraheimilið | Tenglar | Hafa samband | Veftré | Ensk síða
efst.jpg
Saga Fóstbræðra

Ágrip af sögu Fóstbræðra  
Saga karlakórsins Fóstbræðra er samofin íslenskri tónlistarsögu. Rætur kórsins liggja í starfi KFUM og hins ötula foringja þess, séra Friðriks Friðrikssonar, enda var kórinn upphaflega kenndur við KFUM.


jon-halldorsson.jpg
Jón Halldórsson

Þó að kórfélagið sé formlega stofnað í nóvember árið 1916 þegar Jón Halldórsson var ráðinn söngstjóri, þá hafði reglulegt kórstarf staðið allt frá árinu 1911. Starfsemi kórsins gjörbreyttist við ráðningu Jóns, og var nú stefnt að sjálfstæðu söngstarfi með reglulegum opinberum tónleikum fyrir bæjarbúa. Fyrstu tónleikarnir af þessu tagi voru haldnir í Bárubúð 25. mars 1917 og fyrsta lagið á efnisskránni var Skarphéðinn í brennunni eftir Helga Helgason við texta eftir Hannes Hafstein. Upphaf ljóðsins er "Buldi við brestur og brotnaði þekja", og sannarlega buldi við brestur í íslensku tónlistarlífi þegar karlakórahefðin festi rætur sínar í íslenskri menningu og vann sér um leið fastan sess í þjóðarsálinni. Árlegir tónleikar Karlakórs KFUM og síðar Fóstbræðra urðu þar með að litríkum þætti í tónlistarlífi borgarinnar. Kórinn skipaði sér fljótlega í fremstu röð söngfélaga í landinu og var því ekki síst að þakka markvissri og listrænni stjórn hins ötula söngstjóra, Jóns Halldórssonar, sem stjórnaði kórnum allt til ársins 1950 eða alls í 34 ár.
Kórinn fór í sína fyrstu utanlandsferð árið 1926 til Noregs, með viðkomu í Færeyjum á heimleiðinni. Kórinn söng víða í Noregi við frábærar undirtektir. Þá tók kórinn þátt í móti blandaðra kóra í Kaupmannahöfn 1929, þar sem hann lagði til allar karlaraddirnar, undir stjórn Sigfúsar Einarssonar, tónskálds. Árið 1931 var kórinn svo aftur á ferð í Danmörku á norrænni sönghátið sem haldin var í tilefni 25 ára afmælis danska karlakórsins Bel Canto. Kórinn tók einnig þátt í hátiðarsöngnum á Alþingishátíðinni 1930 og söng sama ár inn á sína fyrstu hljómplötu og mun það vera fyrsta tónlistarupptaka hér á landi.
Fóstbræður tóku þátt í eftirminnilegri söngför Sambands íslenskra karlakóra til Norðurlanda 1946 þar sem flestir söngmanna voru úr röðum Fóstbræðra en nokkrir frá karlakórnum Geysi á Akureyri. Þar var söngstjóri ásamt Jóni Halldórssyni, Ingimundi Árnasyni, stjórnandi Geysis. Þar var og með í för ungur og efnilegur píanóleikari, sem átti eftir að gera garðinn frægan, Rögnvaldur Sigurjónsson að nafni.
Kórinn starfaði á sínum fyrstu árum í nánum tengslum við KFUM en á því varð þó breyting eftir því sem árin liðu m.a. vegna þess að öðrum en félögum í KFUM var leyft að taka þátt í söngstarfi kórsins. Þannig fjarlægðist kórinn KFUM smám saman og á árinu 1936 var nafni kórsins breytt í Fóstbræður þegar endanlega var slitið á tengsl kórsins við KFUM. 


jonthorarinsson.jpg
Jón Þórarinsson tekur við

 Jón Þórarinsson, tónskáld, tók við stjórn kórsins árið 1950 og stjórnaði honum til 1954 þegar hann hélt utan til framhaldsnáms í tónlist. Þó Jóns Þórarinssonar nyti ekki lengi við sem aðalstjórnanda kórsins þá hefur hann þó sett sitt mark á kórstarfið m.a. með mjög vönduðum útsetningum fyrir kórinn og ekki síst sem stjórnandi Gamalla Fóstbræðra frá stofnun þess félagsskapar 1959 og allt til ársins 1997. Kórinn fór í velheppnaða söngferð til Evrópu undir stjórn Jóns sumarið 1954 þar sem hann kom m.a. fram í sjónvarpi í London og París, nokkuð sem taldist til tíðinda á þeim tíma. Þá söng kórinn inn á hljómplötu í London.

 

ragnar-bjornsson.jpg

Ragnar Björnsson ráðinn
Haustið 1954 tók Ragnar Björnsson við stjórn kórsins. Ragnar var þá nýkominn úr tónlistarnámi, ungur og uppfullur af nýjum hugmyndum sem áttu eftir að setja varanlegt mark á kórinn. Ekki voru allir kórfélagar sáttir við ýmsar nýjungar Ragnars í lagavali og hrikti í stoðum kórsins um tíma, en Ragnar hafði sitt fram og á því leikur enginn vafi að hinar nýju og breyttu áherslur hans höfðu mjög jákvæð áhrif á söngstarfið og fleyttu kórnum að vissu leyti inn í nútímann. Ragnar stjórnaði kórnum til ársins 1970 að einu ári undanskildu 1965-66 þegar hann fór til náms erlendis, en þá hljóp Jón Þórarinsson í skarðið fyrir Ragnar. Ragnar tók síðan aftur við sprotanum 1980 og stjórnaði kórnum til ársins 1991 eða samtals í 26 ár.
Undir stjórn Ragnars vann kórinn marga sigra. Kórinn fór í margar minnistæðar utanlandsferðir undir hans stjórn. Sú fyrsta var farin árið 1960 til Noregs og Danmerkur og árið síðar var haldið til Finnlands og Sovétríkjanna þar sem kórinn hélt tónleika m.a. í Tsjækovskí-salnum í Moskvu. Þá var kórnum mikill heiður sýndur þegar hann var valinn til þess að syngja sem fulltrúi Íslands við opnun menningarhátíðarinnar Scandinavia Today í Washington D.C. og í Minneapolis í september 1982. Það var án efa ein af stærstu stundum Fóstbræðra þegar þeir sungu undir stjórn Ragnars á sviði aðaltónleikasals hins glæsilega Kennedy Centers í Washington. 1987 hélt kórinn enn utan í söngferð til Þýskalands, Austurríkis og Ungverjalands þar sem megintilgangurinn var þátttaka í miklu kóramóti sem haldið var Lindenholzhausen í Þýskalandi. Þar keppti kórinn við 25 karlakóra frá 10 löndum og hlaut 3. sætið þar sem keppni 3ja efstu kóranna var nánast hnífjöfn. Þá fór kórinn ásamt Gömlum Fóstbræðrum til Kanada og Bandaríkjanna í ágústmánuði 1989 þar sem aðaltilefnið var að syngja við hátíðahöldin í tilefni 100. Íslendingadagsins í Gimli í Manitoba. Þar voru með í för Jón Þórarinsson, stjórnandi Gamalla, og Jónas Ingimundarson, píanóleikari og stjórnandi ásamt Ragnari Björnssyni.

 

gardar-cortes.jpg
Garðar Cortes

Haustið 1970 tók Garðar Cortes óperusöngvari við stjórn kórsins og stjórnaði honum til 1973. Það bar helst til tíðinda undir stjórn Garðars að kórinn tók þátt á alþjóðlegri söngkeppni í Llangollen í Wales, fyrstur íslenskra karlakóra. Skemmst er frá því að segja að kórinn hlaut 2. sætið í keppni stærri karlakóra. Var það í fyrsta sinn sem íslenskur kór hreppti verðlaunasæti á alþjóðlegu kóramóti. 

 

 

 jon-asgeirsson.jpg

Jón Ásgeirsson

Jón Ásgeirsson, tónskáld, tók við stjórn kórsins af Garðari, en hann stjórnaði einungis í eitt starfsár, 1973-1974. Þetta ár tóku félagar úr Fóstbræðrum þátt í flutningi óperu Jóns, Þrymskviðu, með einsöngvurum og Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn höfundar.

 

 

 

 

jonasingimundarson.jpg

Jónas Ingimundarson

Næsti söngstjóri Fóstbræðra var Jónas Ingimundarson og stjórnaði hann kórnum frá hausti 1974 til ársloka 1979. Undir hans stjórn fór kórinn í utanlandsferðir til Finnlands og Sovétríkjanna 1976 og til Færeyja 1978. Jónas hefur komið miklu meira við sögu kórsins heldur en í eiginlegri stjórnendatíð sinni, því hann hefur margsinnis verið píanóleikari með kórnum auk þess að stjórna kórnum við ýmis tækifæri í forföllum söngstjóra. Hann tók við af Jóni Þórarinssyni sem stjórnandi Gamalla Fóstbræðra 1997.

 

arni-hardarson.jpg

Árni Harðarson

Núverandi söngstjóri Fóstbræðra er Árni Harðarson, píanóleikari og tónskáld. Hann tók við kórnum haustið 1991 og hefur stjórnað honum óslitið síðan. Vorið 1996 hélt kórinn undir stjórn Árna utan til Danmerkur, Svíþjóðar, Finnlands og Eistlands. Sú ferð var farin m.a. í tilefni af 80 ára afmæli kórsins það ár og þótti takast mjög vel. Á afmælisárinu var m.a. gefinn út vandaður hljómdiskur, Ár vas alda, sem hefur að geyma íslensk lög allt frá þjóðlögum til nútímaverka. Þá frumfutti kórinn á Akureyri haustið 1997 tónverkið De ramis cadunt folia fyrir karlakór og orgel eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson. Meðal eftirminnlegri nýjunga sem kórinn hefur tekið þátt í undir stjórn Árna eru tónleikarnir Íslenskir karlmenn með hljómsveitinni Stuðmönnum og fleirum mánaðamótin febrúar-mars 1998. Þar var blandað saman popptónlist og karlakór á nýstárlegan hátt og sú blanda var bæði forvitnileg og áhugaverð í alla staði enda tókust tónleikarnir með eindæmum vel. Tónleikar þessir voru hljóðritaðir og gefnir út á geisladisk, og er hann nú þegar einn af söluhæstu diskum sem komið hefur út hér á landi. Kórinn tók þátt í alþjóðlegri kórakeppni (Musica Sacra) í Prag í júní 2001 og hreppti gullverðlaun.

Undir stjórn Árna hefur kórinn tekist á við mörg áhugaverð verkefni og mætti nefna flutning á Ödipus Rex eftir Stravinsky í Pétursborg vorið 2004 með Fílharmóníuhljómsveit Pétursborgar. Fjölmörg verkefni með Sinfóníuhljómsveit Íslands hafa verið á verkefnaskrá kórsins undanfarin ár og þátttaka í Listahátíð í Reykjavík.

Eitt meginverkefni Fóstbræðra frá fyrstu tíð hefur verið að flytja hefðbundna íslenska og erlenda tónlist á sem metnaðarfyllstan hátt. Jafnframt hefur kórinn lagt á það ríka áherslu að flytja nýja tónlist, verk sem oft hafa verið skrifuð sérstaklega fyrir kórinn. Það er mikilvægt fyrir kórinn að takast á við nýtt og krefjandi efni til þess að koma í veg fyrir stöðnun og sönglegan doða. Kórinn hefur og verið afar vandlátur í vali söngstjóra og telur sig hafa átt því láni að fagna að þar hafa mjög hæfileikaríkir menn verið kvaddir til hverju sinni.

 

Lesa meira...
 
 
Innskráning