Vetrarstarfið hafið
Karlakórinn Fóstbræður hóf vetrarstarf sitt nú í byrjun september. Fyrsta verkefni vetrarins var upptaka á geisladiski með Högna Egilssyni sem samið hefur alla tónlistina. Margir muna eftir tónleikum Högna, Davíðs Þórs Jónssonar og Fóstbræðra í Hörpu í vor en þeir tónleikar vöktu verulega athygli. Upptökum lauk 13. september. sl. Næsta verkefni er upptaka á öllum karlakórslögum Sigvalda Kaldalóns en þau eru alls 37 talsins. Áætlað er að taka diskinn upp í þrem törnum og ljúka upptökum á starfsárinu. Þá verður einnig lokið við upptökur á geisladiski með evrópskri 20. aldar tónlist sem kórinn hefur unnið að frá því á síðasta ári. Tónleikar kórsins á allra sálna messu á síðasta ári vöktu mikla aðdáun. Á þeim tónleikum var flutt hugljúf tónlist blönduð ljóðalestri. Helena Jónsdóttir, dansari, samdi myndbönd sem sýnd eru meðan tónlistin flæðir áfram. Uppstilling kórsins er óvenjuleg og stundin er hugsuð til þess að fólk geti komið og átt hljóða stund og minnst látinna ástvina í kyrrð. Áætlað er að þetta verði fastur liður í starfi kórsins næstu árin og fara þeir fram í Langholtskirkju 1. nóvember kl. 20:00. Þá verður tekið til við að æfa fyrir vortónleika og árlega jólatónleika Frostrósa en þetta er 10. árið sem jólatónleikar Frostrósa verða fluttir og hafa Fóstbræður tekið þátt í þeim frá upphafi. Nú verða tónleikarnir væntanlega í Hörpu og verða senn auglýstir. Að loknum áramótum hefst síðari hluti starfsársins á æfingum fyrir enn einn geisladiskinn. Hann hefur ekki enn verið kynntur og því ekki hægt að greina frá nafni og öðrum flytjendum en okkur Fóstbræðrum. Eftir að upptöku þess disks lýkur verður fram haldið með æfingar fyrir vortónleika kórsins og ferð út á land. Stefnt er að því að heimsækja Austurland að þessu sinni. Vortónleikar kórsins fara fram í Langholtskirkju 1., 2., 3. og 5. maí 2012. Kórfélagar eru nú um 80 talsins og bættust 8 nýir menn í kórinn í haust. Starf Gamalla Fóstbræðra stendur í blóma og eru eldri félagar hvattir til þess að koma á æfingar sem eru að hluta til sameiginlegar með starfandi kórnum. Ykkur verður tekið fagnandi.




