|
| Fréttir |
|---|

| Auglýst eftir nýjum söngmönnum |
|
Fóstbræður geta bætt við sig nokkrum söngmönnum haustið 2010. Gerð er krafa um góða rödd, tónheyrn og einhverja tónlistarmenntun. Æskilegt er að umsækjendur séu yngri en 45 ára. Æfingar kórsins eru á mánudags-og miðvikudagskvöldum. Þeir sem hafa áhuga sendi tölvupóst á Þetta netfang er varið fyrir ruslpóst snöpum, þú þarf að hafa javascript virkt í vafranum til að sjá það. með upplýsingum um nafn, kennitölu, heimilisfang og síma og upplýsingum um tónlistarreynslu sína eða hafi samband við formann kórsins, sem er nú Gunnlaugur V. Snævarr, í síma 898 7050.
Innan Fóstbræðra er öflugt félagslíf. og mikil gleði og ánægja ríkir innan hópsins. Hæst bera Vorhátíð að loknum vortónleikum, árshátíð Hrútafélagsins og menningarhátíð á þorra. Einnig er starfrækt ferðafélag sem stendur fyrir einni hálendisferð á ári. Karlakórinn leggur áherslu á vinskap félaga og góð tengsl við fjölskyldurnar. Um leið og söngurinn er æfður tengjast menn vináttuböndum sem vara ævilangt. Söngstjóri kórsins, Árni Harðarson, er ungur og metnaðarfullur stjórnandi sem leggur áherslu á vandaðan flutning. Til Fóstbræðra eru gerðar miklar kröfur enda hefur orðspor hans borist víða.
Til upplýsinga fyrir nýja bræður skal þess getið að æft er tvisvar í viku. Á mánudögum kl. 18:15 og á miðvikudögum kl. 19:30. Æfingarnar standa í u.þ.b. tvo klukkutíma. Gerðar eru strangar kröfur um mætingu og stundvísi. |
| < Fyrra | Næsta > |
|---|