Jólakveðja til allra velunnara karlakórsins Fóstbræðra
Senn nálgast jólahátíðin með allri sinni birtu og yl. Við Fóstbræður búumst til jólahalds og fögnum hátíðinni ekki síður en aðrir enda höfum við staðið í ströngu undanfarið. Við sungum með Frostrósum 10. árið í röð og afmælistónleikarnir fóru fram í Hörpu, tónlistarhúsinu okkar góða. Við höfum líka unnið að upptökum á öllum karlakórslögum Sigvalda heitins Kaldalóns, þess mikilhæfa og þekkta tónskálds. Flestir þekkja lög hans en færri karlakórslögin hans sem hafa ekki oft heyrst í flutningi. Stefnt er að því að ljúka því verki á næsta ári. Eftir áramótin höldum við áfram æfingum og upptökum á lögum Kaldalóns og tökum til við æfingar fyrir vortónleika okkar sem verða 1. – 5. maí. Einsöngvari á vortónleikum verður Gissur Páll Gissurarson, tenór, sem nú er þjóðkunnur fyrir frábæran söng og skemmtilega framkomu. Svo koma alltaf upp einhver skemmtileg verkefni sem ekki eru frágengin en koma í ljós á sínum tíma. Fóstbræður óska öllum velunnurum kórsins gleðilegra jóla og gæfuríks nýs árs með von um að hittast á tónleikum okkar á árinu 2012.





