Karlakórinn Fóstbræður
Forsíða | Um Fóstbræður | Fréttir | Tónleikahald / Verkefni | Útgáfa | Fóstbræðraheimilið | Tenglar | Hafa samband | Veftré | Ensk síða
Fréttir
notur.jpg
Tónleikar á Akranesi

  Karlakórinn Fóstbræður hélt tónleika á Akranesi í gærkvöldi, 5. nóvember.

Á dagskránni voru hefðbundin karlakórslög, kirkjuleg verk og þekkt gömul einsöngslög sem birtust þarna í útsetningu söngstjórans, Árna Harðarsonar. Meðleikari á tónleikunum var Steinunn Birna Ragnarsdóttir. Úr hópi kórfélaga sungu einsöng og tvísöng: Einar Ingi Hermannsson, Friðrik Snorrason, Hannes Snorrason og Ragnar Árni Sigurðarson.

Viðtökur áheyrenda voru mjög góðar og þótti þetta hins besta skemmtun og flutningur mjög vandaður.

 
Söngur við jarðarfarir

Karlakórinn Fóstbræður hefur um langt árabil verið eftirsóttur við útfararsöng. Kórinn hefur þá reglu að hittast alltaf einni klukkustund fyrir útför og æfa lögin sem syngja á þrátt fyrir að menn hafi sungið þau margoft áður. Nánast alltaf hefur kórinn stjórnanda sinn, Árna Harðarson, við stjórnvölinn.

Á þennan hátt reyna Fóstbræður að bjóða upp á vandaðan flutning sem hæfir þessum athöfnum.

Umsjónarmaður með útfararsöng Fóstbræðra er Reynir Þormar s. 8965753 -892 4343

 
Nýir söngmenn

Raddprófunum á haustönn er lokið. Mikill áhugi reyndist á því að ganga til liðs við Fóstbræður. Alls höfðu 24 umsækjendur samband við stjórn og 18 voru teknir í raddpróf. Af þeim voru 13 valdir til reynslu í eitt ár.

Smile

Vetrarstarfið hefst miðvikudaginn 16. september kl. 19:30 en nýir félagar eru boðaðir kl. 18 í móttöku og kynningu á starfsemi kórsins.

 

Nýir söngvarar eru þessir:

 

Alfreð Jóhannsson                    

Benedikt Benediktsson            

Björn I. Jónsson                         

Einar Ingi Hermannsson          

Eiríkur Jónsson                          

Geir Gunnlaugsson                   

Ingjaldur Arnþórsson             

Jón Leifsson                              

Sigurbjartur Helgason             

Sturla Fanndal                         

Þorgeir H. Níelsson                

Þorsteinn Sigurfinnsson           

Örn Guðnason                           

 

 

 

 

 

Lesa meira...
 
Vortónleikum Fóstbræðra lokið

 

Umsögn um söng Fóstbræðra á vortónleikum 2009

 

 

Langholtskirkja, 28. apríl 2009

Karlakórinn Fóstbræður, Þóra Einarsdóttir og Steinunn Birna Ragnarsdóttir undir stjórn Árna Harðarsonar, fluttu íslensk og erlend söngverk.

Karlakórinn Fóstbræður flutti vandaða og metnaðarfulla dagskrá á vortónleikum kórsins í gærkvöldi, þann 28. apríl. Hljómur kórsins er þéttur og  mjög gott jafnvægi er á milli radda. Verkefnaval Fóstbræðra  spannaði vítt svið tónbókmenntanna: óperur, kirkjuleg sem og veraldleg verk, þjóðlög, dansa og ballöður.

Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarsonar sýndu að þeir hafa góð tök á öllum þessum tegundum kórtónlistar og ennfremur að þeir eru tilbúnir til þess að kanna og flytja ný kórverk. Þetta gæðir söng þeirra margvíslegum litbrigðum og efnisskrána tilbreytingu.

Fóstbræður eru vel settir með Árna Harðarson sem kórstjóra. Árna tekst að laða fram hjá kórnum einhvern séríslenskan hljóm; eins konar blöndu af einlægni og heiðríkju en um leið má greina gleði og góðan liðsanda innan kórsins.

Á þessum síðustu og verstu væri það sjálfsagt gott fyrir sálartetrið hjá mörgum að skella sér inn í þá heiðríkju hugans sem ríkir á tónleikum þeirra Fóstbræðra.

Steinunn Birna Ragnarsdóttir lék mjög vel á flygilinn og náðu þær Þóra Einarsdóttir ásamt Fóstbræðrum hæstu hæðum í aríu og kabalettu úr óperunni Normu eftir Bellini. Þóra sýndi enn og sannaði að hún er ein allra besta söngkona Íslendinga frá upphafi bæði hvað varðar túlkun og tækni. Hrein unun var að hlýða á vals Júlíu úr óperunni Rómeó og Júlía eftir Gounod þar sem klukkuhrein röddin sveif áreynslulaust upp og niður tónstigann ávallt jöfn og þétt, sannkallað belcanto.

Ég mæli eindregið með þessum tónleikum fyrir alla unnendur sönglistarinnar.

Bestu kveðjur

Björn Jónsson

Lesa meira...
 
Næsta verkefni o.fl.

 

KARLAKÓRINN FÓSTBRÆÐUR heldur tónleika í  TÓNBERGI AKRANESIfimmtudagskvöldið 5. nóvember 2009kl. 20:00 Meðleikari: Steinunn Birna RagnarsdóttirStjórnandi: Árni Harðarson

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vetrarstarfið 2009 - 2010 hófst 16. september. Á dagskrá eru tónleikar á AKranesi fimmtudaginn 5. nóvember kl. í Tónbergi. Þar verður flutt hefðbundin karlakóratónlist þ.m.t. nokkur þekkt og vinsæl lög í útsetningu Árna Harðarsonar, söngstjóra.

 

Kórinn mun gefa út sálmadisk fyrir jól og lýkur upptökum 2. nóvember.

 

Þá munu Fóstbræður taka þátt í Frostrósum eins og undanfarin ár og syngja á aðventunni í Seljakirkju og á samkomu í Friðrikskapellu auk þess að syngja sérstaka jólatónleika í Guðríðarkirkju laugardaginn 19. desember.

Eftir áramót verður hafinn undirbúningur að vortónleikum og söngferð út á land.

 

Kórinn tekur auk þess þátt í nokkrum tónleikum og viðburðum á starfsárinu.

Lesa meira...
 
Reykholtshátíð 2009

kirkjutonleikar.jpgFóstbræður tóku þátt í Reykholtshátíð 2009. Þar komfram fjöldi listamanna samkvæmt venju. Kórinnsöng á lokatónleikum hátíðarinnar 26. júlí nk. og strengjasveit frá Lithauen lék undir í hluta verkanna. M.a voru fluttar nýjar útsetningar fyrir karlakór og strengjasveit eftir Árna Harðarson, söngstjóra. Má þar nefna Lindina, og Draumalandið. Vakti þessi flutningur sérstaka athygli, bæði útsetningarnar og flutningur. Krikjan var yfirfull og móttökur tónleikagesta frábærar.

Skipuleggjari hátíðarinnar er Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanóleikari.

Nánar síðar.

Lesa meira...
 
Fóstbræður taka upp sálma

jonogarni.jpg

 

Fóstbræður gefa út disk með

sálmasöng, Til ljóssins og lífsins

Um þessar mundir er verið að leggja síðustu hönd á vinnslu geisladisks sem inniheldur flutning Fóstbræðra á sálmum af ýmsu tagi.

Þetta eru í langflestum tilvikum sálmar og lög sem hafa unnið sér sess við kirkjulegar athafnir af margvíslegu tagi í gegnum nokkrar kynslóðir.

Sem dæmi um þekkta sálma sem Fóstbræður flytja á diski þessum mætti nefna Hærra minn Guð til þín, Lýs milda ljós, Ég kveiki á kertum mínum og Hvað bindur vorn hug.

Árni Harðarson, stjórnandi kórsins, samdi einn sálmanna á disknum, Stafar frá stjörnu, við kvæði Matthíasar Jochumssonar fyrir Ríkisútvarpið. Meðal nýrri verka ber að nefna Til þín Drottinn eftir Þorkel Sigurbjörnsson við ljóð Páls V. Kolka. 

Upptökur fóru fram í Langholtskirkju undir stjórn Sigurðar Rúnars Jónssonar og með tilstyrk Jóns Stefánssonar, organista kirkjunnar, sem leikur með kórnum á orgel ímörgum sálmanna.

Kirkjutónlist er stór þáttur í verkefnaskrá karlakóra og Fóstbræður hafa alla sína starfstíð sungið við kirkjulegar athafnir af margvíslegu tagi. Kórinn á rætur sínar í kristilegu starfi KFUM og með þessum diski má því segja að kórinn sé að minnast uppruna síns og leggja fram skerf til flutnings tónlistar við kirkjulegar athafnir. EInsöngvari með kórnum er Þóra EInarsdóttir, sópransöngkona. Hana þarf ekki að kynna enda ein af okkar allra bestu söngvurum dagsins í dag.

Vonir standa til þess að verði diskurinn tilbúinn til sölu í lok nóvember, bæði á vegum kórsins og í helstu hljómplötuverslunum.

 

 

 

 
Nýtt starfsár

Nýtt starfsár Fóstbræðra hefst 16. september 2009. Á dagskrá er útgáfa geilsadisks, jólatónleikar og eftir áramót verður hafist handa við undirbúning vortónleika auk þess sem Fóstbræður hyggjast standa fyrir skemmtikvöldum í húsnæði sínu að Langholtsvegi 109 - 111.

 

 kirkjutonleikar.jpg

 

 Að loknum jólatónleikum með Frostrósum og sérsstökum tónleikum í Guðríðarkirkju fóru Fóstbræður í langþráð jólafrí. Að vísu sungu þeir með tenórunum 3 í Háskólabíói 3. janúar 2010 við góðar undirtektir.

 

Á dagskránni til vors er m.a. undirbúningaur að útgáfu geisladisks í haust með fjölbreytilegum verkum m.a. eftir Gustav Holst og fleiri.

 

Þá verða hefðbundnir vortónleikar kórsins 13., 14, 15. og 17 apríl í Langholtskirkju. EInsöngvarar á tónleikunum verða Auður Gunnarsdóttir, sópransöngkona og félagar úr Fóstbræðrum.

 

Kórinn hyggur á ferð norður í land í vor og verður á Blönduósi 22. apríl, Akureyri 23. apríl og á Dalvík 24. apríl.

Það verður allt auglýst vandlega er nær dregur.

 
Hrútafélagið

 

Hrútafélagið

 

Image
Tvöfaldur kvartett úr hópi Fóstbræðra syngur á skemmtun Hrútafélagsins.
Hin árlega haustskemmtun Hrútafélags karlakórsins Fóstbræðra fer fram 9. október nk. Þessi skemmtun sem haldin er innan félagsins hefur þann tilgang að gefa kórfélögum, mökum þeirra og vinum og félögum færi á að hittast eina kvöldstund, borða saman góðan mat og skemmta sér. Marteinsmessa sem stundum var kölluð Hrútamessa til forna er einmitt um þetta leyti og þá var siður góðra bænda að taka hrútana frá, sem kallað var, en þá voru þeir teknir úr hjörðinni og fóðrun hafin fyrir fengitíma.

 

Á haustskemmtun Hrútafélagsins er leitast við að koma á framfæri skemmtiatriðum kórfélaga sjálfra .

Á efnisskrá eru alls kyns revíuatriði og listrænir viðburðir.

Lárus Loftsson, Forseti Hrútafélagsins, sér að vanda um matinn, flytur nokkur ávörp og veitir heiðursmerki samkvæmt hefð.

Image
Lárus Loftsson, forseti Hrútafélagsins sæmir Árna Harðarson söngstjóra heiðursmerki félagsins.
 
Fóstbræður syngja fyrir Göngum saman

Image Samtökin Göngum saman er grasrótarhópur kvenna sem safna fé til grunnrannsókna á krabbameini í brjóstum. Hópurinn hefur vakið þjóðarathygli fyrir öflugt starf og góðan árangur og starf hans hefur breiðst út um land allt og gönguhópar kvenna orðið til hér og þar.

Þriðjudaginn 20. okt söfnuðust glaðar konur og kátir karlar saman í húsakynnum Krabbameinsfélagsins við Skógarhlíð þar sem tilkynnt var um styrkveitingar úr sjóðnum til vísindaverkefna. Karlakórinn Fóstbræður var mættur þar með stjórnanda sínum og söng þrjú lög að lokinni verðlaunaafhendingu við góðar undirtektir viðstaddra. Kórinn hefur margvísleg tengsl við átakið því í okkar litla landi þekkja áreiðanlega allir eða tengjast einhverjum sem hefur þurft að berjast við krabbamein. Forsprakki átaksins Göngum saman, Gunnhildur Óskarsdóttir er eiginkona Arnórs Sigfússonar kórfélaga til margra ára svo aðeins eitt dæmi sé tekið. Það var góð stemmning, gleði og bjartsýni sem sveif yfir vötnum í Skógarhlíðinni þetta síðdegi þar sem stoltir kórmenn lögðu sitt af mörkum til að gera stundina eftirminnilega.

 

 
 
Innskráning