Karlakórinn Fóstbræður
Forsíða | Um Fóstbræður | Fréttir | Tónleikahald / Verkefni | Útgáfa | Fóstbræðraheimilið | Tenglar | Hafa samband | Veftré | Ensk síða
Fréttir
efst.jpg
Vortónleikum Fóstbræðra lokið

 

Umsögn um söng Fóstbræðra á vortónleikum 2009

 

 

Langholtskirkja, 28. apríl 2009

Karlakórinn Fóstbræður, Þóra Einarsdóttir og Steinunn Birna Ragnarsdóttir undir stjórn Árna Harðarsonar, fluttu íslensk og erlend söngverk.

Karlakórinn Fóstbræður flutti vandaða og metnaðarfulla dagskrá á vortónleikum kórsins í gærkvöldi, þann 28. apríl. Hljómur kórsins er þéttur og  mjög gott jafnvægi er á milli radda. Verkefnaval Fóstbræðra  spannaði vítt svið tónbókmenntanna: óperur, kirkjuleg sem og veraldleg verk, þjóðlög, dansa og ballöður.

Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarsonar sýndu að þeir hafa góð tök á öllum þessum tegundum kórtónlistar og ennfremur að þeir eru tilbúnir til þess að kanna og flytja ný kórverk. Þetta gæðir söng þeirra margvíslegum litbrigðum og efnisskrána tilbreytingu.

Fóstbræður eru vel settir með Árna Harðarson sem kórstjóra. Árna tekst að laða fram hjá kórnum einhvern séríslenskan hljóm; eins konar blöndu af einlægni og heiðríkju en um leið má greina gleði og góðan liðsanda innan kórsins.

Á þessum síðustu og verstu væri það sjálfsagt gott fyrir sálartetrið hjá mörgum að skella sér inn í þá heiðríkju hugans sem ríkir á tónleikum þeirra Fóstbræðra.

Steinunn Birna Ragnarsdóttir lék mjög vel á flygilinn og náðu þær Þóra Einarsdóttir ásamt Fóstbræðrum hæstu hæðum í aríu og kabalettu úr óperunni Normu eftir Bellini. Þóra sýndi enn og sannaði að hún er ein allra besta söngkona Íslendinga frá upphafi bæði hvað varðar túlkun og tækni. Hrein unun var að hlýða á vals Júlíu úr óperunni Rómeó og Júlía eftir Gounod þar sem klukkuhrein röddin sveif áreynslulaust upp og niður tónstigann ávallt jöfn og þétt, sannkallað belcanto.

Ég mæli eindregið með þessum tónleikum fyrir alla unnendur sönglistarinnar.

Bestu kveðjur

Björn Jónsson

 

 

Fyrstu vortónleikar Fóstbræðra árið 2009 fóru fram í gærkvöldi, 28. apríl. Fyrir hlé söng kórinn íslensk og sænsk lög sem flest eru kunn aðdáendum Fóstbræðra. Í tveimur þeirra sungu kórfélagar einsöng. Vart þarf að kynna Þorstein Guðnason, 1. tenór, sem hefur margoft sungið einsöng með kórnum og er einn af hornsteinum hans. Þá steig Hjálmur Gunnarsson, 2. bassi, fram á sviðið og þreytti fumraun sína á því sviði. Báðir stóðu þeir sig með prýði eins og vænta mátti. Annar hornsteinn Fóstbræðra, Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanóleikari annaðist allan undirleik á tónleikunum og eins og alltaf áður er ómetanlegt að hafa svo frábæran meðleikara með kórnum. Eftir hlé frumflutti kórinn tvö íslensk tónverk. Fyrra verkið var Sanctus eftir Ólaf Héðin Friðjónsson, kórfélaga í 1. bassa og svo Ubi Caritas eftir Sigurð Sævarsson, tónskáld.

Þá flutti kórinn verkið Tarantella eftir ameríska tónskáldið Randall Thompson og er þetta frumflutningur verksins á Íslandi og fyrsta verk þessa tónskálds sem kórinn tekur til flutnings. Í því verki reynir verulega á færni píanóleikarans sem sló hvergi feilpúst. Á efnisskránni var einnig verk eftir Andrew Lloyd Webber sem heitir Pie Jesu. Í því verki söng Þóra Einarsdóttir, sópransöngkona, einsöng og eins og í fleiri verkum sem hún söng, var söngur hennar í hágæðaflokki. Tónleikunum lauk með óperukórum þar sem fjörið er í öndvegi.

Sem fyrr stýrði Árni Harðarson kórnum af öryggi og nákvæmni. Það var mat þeirra tónleikagesta sem tíðindamaður síðunnar ræddi við að þetta hefðu verið mjög góðir tónleikar, kórinn hefði sungið afar vel og gott jafnvægi væri milli radda kórsins. Sérstaka athygli hve gott vald kórinn hafði á veikum söng og sömuleiðis þegar allt var á fullu. Það var mat þessa fólks að þessa tónleika mætti enginn láta framhjá sér fara.

 

 
< Fyrra   Næsta >
 
Innskráning