|
| Fréttir |
|---|

| Fóstbræður taka upp sálma |
|
Fóstbræður gefa út disk með sálmasöng, Til ljóssins og lífsins Um þessar mundir er verið að leggja síðustu hönd á vinnslu geisladisks sem inniheldur flutning Fóstbræðra á sálmum af ýmsu tagi. Þetta eru í langflestum tilvikum sálmar og lög sem hafa unnið sér sess við kirkjulegar athafnir af margvíslegu tagi í gegnum nokkrar kynslóðir. Sem dæmi um þekkta sálma sem Fóstbræður flytja á diski þessum mætti nefna Hærra minn Guð til þín, Lýs milda ljós, Ég kveiki á kertum mínum og Hvað bindur vorn hug. Árni Harðarson, stjórnandi kórsins, samdi einn sálmanna á disknum, Stafar frá stjörnu, við kvæði Matthíasar Jochumssonar fyrir Ríkisútvarpið. Meðal nýrri verka ber að nefna Til þín Drottinn eftir Þorkel Sigurbjörnsson við ljóð Páls V. Kolka. Upptökur fóru fram í Langholtskirkju undir stjórn Sigurðar Rúnars Jónssonar og með tilstyrk Jóns Stefánssonar, organista kirkjunnar, sem leikur með kórnum á orgel ímörgum sálmanna. Kirkjutónlist er stór þáttur í verkefnaskrá karlakóra og Fóstbræður hafa alla sína starfstíð sungið við kirkjulegar athafnir af margvíslegu tagi. Kórinn á rætur sínar í kristilegu starfi KFUM og með þessum diski má því segja að kórinn sé að minnast uppruna síns og leggja fram skerf til flutnings tónlistar við kirkjulegar athafnir. EInsöngvari með kórnum er Þóra EInarsdóttir, sópransöngkona. Hana þarf ekki að kynna enda ein af okkar allra bestu söngvurum dagsins í dag. Vonir standa til þess að verði diskurinn tilbúinn til sölu í lok nóvember, bæði á vegum kórsins og í helstu hljómplötuverslunum.
|
| < Fyrra | Næsta > |
|---|