Karlakórinn Fóstbræður
Forsíða | Um Fóstbræður | Fréttir | Tónleikahald / Verkefni | Útgáfa | Fóstbræðraheimilið | Tenglar | Hafa samband | Veftré | Ensk síða
Fréttir
efst.jpg
Nýtt starfsár

Nýtt starfsár Fóstbræðra hefst 13. september 2010. Á dagskrá er hefðbundið starf með æfingum og tónleikum í bland. Fyrst er þátttaka kórsins í Kötlumótinu sem fram fer 15. október. Þann 1. nóvember mun kórinn minnast látinna með tónleikum í Langholtskirkju. Tónleikarnir verða óvenjulegir að því leyti að notast verður við mynda- og ljósatækni eftir hugmyndum Helenar Jónsdóttur, danshöfundar. Óhætt er að fullyrða að þetta verða eftirminnilegir tónleikar. Fyrir jólin tekur kórinn þátt í Frostrósartónleikum að venju og fer að undirbúa vortónleikana sem verða 3. - 7. maí 2011.

Í undirbúningi er nýr geisladiskur sem vonandi kemur út á vordögum og æfingar hefjast líka, í vetur, vegna enn eins nýs geisladisks með íslenskri tónlist en útgáfudagur er ekki ákveðinn.

 kirkjutonleikar.jpg

 

 

 
< Fyrra   Næsta >
 
Innskráning