Skip to Content

Manifestum

Finnski karlakórinn Manifestum ásamt Karlakórnum Fóstbræðrum halda tónleika föstudaginn 15. okt. næstkomandi kl. 20:00 í Langholtskirkju. Kórarnir munu flytja hefðbundin karlakóralög hvor í sínu lagi og einnig flytja þeir nokkur lög saman. Stjórnandi Manifestum er Markus Westerland og stjórndandi Fóstbræðra er Árni Harðarson. Píanóleikari er Steinunn Birna Ragnarsdóttir. Forsala aðgöngumiða er hjá kórmönnum og einnig verða miðar seldir við innganginn meðan húsrúm leyfir. Verð kr. 2.500.

Nánar um Manifestum:

MANIFESTUM er nýr karlakór með fögrum hljómi. Manifestum var stofnaður í júní á þessu ári, og er ný grein af stofni finnskra karlakóra sem eiga rætur sínar frá árinu 1838, þegar karlakórinn Akademiska Sångföreningen var stofnaður. Flestir hinna 34 söngvara Manifestum, hafa áratuga reynslu af söng í helstu karlakórum í Helsinki undir stjórn söngstjóra kórsins, Markus Westerlund. Kórinn er ekki fullmannaður í þessari fyrstu utanlandsferð sinni.

Manifestum á sína eigin stefnuskrá: „Hver söngmaður á sinn rétt til þessað njóta til fullnustu raddgetu sinnar, rétt eins og áheyrandinn á rétt aðnjóta söngsins er hann fyllir bæði hús og sál. Í Manifestum samræmum við höfuð- og brjósthljóm jafnvel í hárri tónhæð svo úr verður voldugur hljómur og orkurík reynsla bæði fyrir söngvara sem og áheyrendur.

Markmið Manifestum er að að byggja upp viðurkenndan kór 50 reyndra söngmanna sem skipar sér sess í fremstu röð í úrvalssveit finnskra karlakóra. Markmið okkar í söng er að endurbæta hinn svífandi hljóm sem einkennt hefur finnska karlakóra.

Við erum afar stoltir yfir því að fara okkar fyrstu tónleikaför til Íslands, og að koma fram á tónleikum með Fóstbræðrum, en margir söngmanna Manifestum eiga margar hlýjar minningar frá margvíslegu samstarfi við Fóstbræður í fjölmörg ár. Þá erum við ekki síður stoltir og ánægðir yfir því að fá að taka þátt í Kötlumótinu.

 

Share this