Karlakórinn Fóstbræður
Forsíða | Um Fóstbræður | Fréttir | Tónleikahald / Verkefni | Útgáfa | Fóstbræðraheimilið | Tenglar | Hafa samband | Veftré | Ensk síða
efst.jpg
Ávarp frá stjórn
Frá öndverðri síðustu öld hefur Karlakórinn Fóstbræður verið kyndilberi íslenskralogofbsmall.gif karlakóra.Kórinn hefur átt ríkan þátt í að þróa og efla karlakóratónlist á alþjóðavísu með þátttöku sinni jafnt í keppni sem og hátíðum og tónleikahaldi víðsvegar um heim. Kórinn telst til elstu menningarstofnana í landinu, en saga hans nær allt til ársins 1911.

Kórinn býr að traustum félögum. Sumir hafa verið svo tryggir kórnum að þeir hafa sungið óslitið í meira en hálfa öld þótt slík dæmi séu fá.

Lykillinn að góðum kór felst í ögun, æfingum, stöðugri sjálfskoðun og endurnýjun, -í samhljómi. Fóstbræður hafa í tímans rás lagt mikla rækt við sígild verk fyrir karlakóra, jafnt innlend sem erlend en auk þess verið óhræddir að takast á við ný og krefjandi verkefni. Þess vegna eru Fóstbræður fljótir að laga sig að allri tegund tónlistar, hvort sem sungin er létt sveifla, sungið með popphljómsveitum, eða jafnvel Sinfóníuhljómsveit Íslands. Kórinn býr yfir mjög tærum og áferðarfallegum hljómi, enda er hann einstök blanda af ungum sem eldri félögum.

Félagslíf innan kórsins er öflugt og skemmtilegt. Kórinn fer að jafnaði í söngferðir erlendis á fimm ára fresti. Á sumrin er gjarnan haldið í ferðalög og eru óbyggðir Íslands ofarlega á lista Fóstbræðra. Þá er grillað saman, og sungið fram eftir á björtum sumarnóttum. Innan raða kórmanna eru mörg dæmi um traustan vinskap sem skapast hefur milli manna í félaginu. Þá eru dæmi um feðga á söngpalli. Einn félagi, Sigurður Kristinsson er sonur Kristins Hallssonar, óperusöngvara og fyrrum starfandi félaga í Fóstbræðrum. Afi hans, Hallur Þorleifsson, var einn af stofnendum kórsins. Sigurður er því þriðji ættliður Fóstbræðra í þeirri fjölskyldu.

Þorrablót Fóstbræðra eða Menningarhátíð Fóstbræðra á þorra eins og það er stundum kallað, hefur verið haldið árlega í um 40 ár og er löngu víðfrægt. Þorrablótið er herrakvöld, en þar skemmta menn sér undir borðhaldi við ræðuhöld, samsöng, kveðskap og alla góða menningu.

Eiginkonur kórmanna eiga sitt félag, Félag Fóstbræðrakvenna. Þær hafa frá fyrstu tíð staðið þétt við bakið á mönnum sínum og veitt kórnum ómetanlegan stuðning, ekki síst er kórinn stóð í byggingu félagsheimilis síns. Þá hafa Fóstbræðrakonur átt allan veg og vanda af lokahófi Fóstbræðra, en það er haldið að kvöldi síðustu vortónleika kórsins og markar lok starfsárs. Mikil leynd hvílir jafnan yfir undirbúningi hvers lokahófs, þema þess og skemmtiatriðum. Fóstbræður fá ekkert að vita fyrr en þeir mæta á hátíðina. Konurnar, glæsilegar í síðkjólum, taka þar á móti mönnum sínum og hefst þá stórhátíð sem stendur fram eftir nóttu.

Gamlir Fóstbræður er kór eldri félaga. Í "Gömlum" eins og gjarna er sagt, eru þeir sem hætt hafa í starfandi kórnum vegna aldurs, eða þeir sem hafa ekki tíma til að æfa tvisvar í viku. Þá geta starfandi félagar einnig verið félagar í "Gömlum".
Gamlir æfa tvisvar í mánuði.

Karlakórinn Fóstbræður æfir tvisvar í viku, mánudaga og miðvikudaga kl 18.15. Æfingatími er oftast nær um tveir tímar. Raddir í karlakór eru fjórar, 1. og 2. tenór og 1. og 2. bassi. Söngstjóri Fóstbræðra er Árni Harðarson, skólastjóri Tónlistarskólans í Kópavogi. Söngmenn í Fóstbræðrum eru um 70. Á hverju hausti eru raddprófaðir þeir menn sem æskja inngöngu í kórinn. Raddpróf fer þannig fram, að umsækjandi syngur eitt lag að eigin vali, auk þess sem tónheyrn viðkomandi er prófuð. Söngstjóri metur oftast með söngkennara sér til aðstoðar, á hvaða raddsviði rödd umsækjanda liggur, hvort hér sé um að ræða tenór eða bassa.

Ef umsækjandi telst hæfur, fær hann inngöngu í kórinn í eitt ár til reynslu. Á fyrsta starfsári hans þarf hann að sanna sig, sönglega og félagslega. Að ári liðnu er hann svo borinn upp til samþykktar á félagsfundi. Hver sem einu sinni er samþykktur, er þar með orðinn ævifélagi. Einu sinni Fóstbróðir, -alltaf Fóstbróðir.

Á síðari árum hafa önnur verkefni kórsins færst mjög í vöxt. Félagar úr Fóstbræðrum syngja og að jafnaði við 2-3 útfarir í hverri viku. Þá er starfandi innan kórsins hópur sem sungið hefur léttari lög og hefur á takteinum sínum ýmsar syrpur 14 Fóstbræðra svo eitthvað sé nefnt. Fóstbræður hafa einnig tekið að sér söng inn á plötur, sem aðrir gefa út, ýmist einir og sér, eða með öðrum.

Fóstbræðraheimilið var vígt 22. apríl 1972. Húsið er hið glæsilegasta, en það var nýlega endurnýjað að öllu leyti og stenst allar þær kröfur er gerðar eru til slíkra húsa. Þar á kórinn sitt heimili og sína sögu.

Jónsstofa er rúmgóð stofa í heimilinu sem kennd er við Jón Halldórsson, fyrsta söngstjóra Fóstbræðra en hann stjórnaði kórnum í 35 ár.Þar eru hýst hin helgu vé kórsins, enda umgangast Fóstbræður stofuna af takmarkalausri virðingu.

Að syngja í kór er hverjum manni hollt. Í kór þurfa allir að taka tillit til hvers annars, enda er það grunnforsenda fyrir góðum samhljómi. Agi er annar lykilþáttur. Uppskeran er svo gleðin í söngnum, en æfingarnar eru kærkomin hvíld og tilbreyting frá amstri hversdagslífsins.

 

 Smári Sigurðsson 

 

Formaður Fóstbræðra er Gunnlaugur V. Snævarr 898 7050  email: Þetta netfang er varið fyrir ruslpóst snöpum, þú þarf að hafa javascript virkt í vafranum til að sjá það.

 

 
 
Innskráning